-(..)-

Þessi bloggsíða er mjög líkleg til að hækka greindarvísitölu þína

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Meiriháttar líkamlegir kækir

Ekki svo langt síðan ég hafði líkamlega þörf til að taka handahlaup upp úr þurru.. og að sama skapi gat ég ekki labbað framhjá útstæðum hurðakarmi eða þverstöng í sömu hæð án þess að girnast það að hanga og sveifla mér. Svo á öðru tímabili þurfti ég alltaf að hoppa hæð mína og slá lófanum í loftið eða allavega reyna það. (það eru vitni að þessum ósköpum) Samt var ég eldri en tvítug..
Núna sveifla ég hárinu mínu (sem er í ferlega asnalegri sídd) alltaf hratt til vinstri en reyni að gera það þegar ég held að enginn sé að horfa, því mig grunar að við það líti ég út eins og ég sé með tourette heilkenni. Og ef ég labba fram hjá vegg sem er örlítið láréttari en 90gráðu lóðréttur finn ég mig knúna til að hlaupa uppá hann svona í boga, allavega nokkur skref.

Svo má líka alltaf lesa það úr andlitinu á mér hvers konar samtöl ég á við ímyndað fólk í huganum en ég verð oftast sjálf meðvituð um það þegar ég byrja að hreyfa varir og yggla brúnir og æfa svör við löngu liðnum aðstæðum.

Svo dettur mér í hug einhver setning út í bláinn og mér finnst ég fyndnust og mesti snillingur í heiminum og ég slæ mér á lær og stappa niður annarri löppinni af sjálfshrifningu. Svo læt ég þá setningu flakka við nálæga einstaklinga sem horfa á mig ráðvilltir og svara mér eins og ég hafi sagt eitthvað allt annað t.d. "-já einmitt, leiðinleg rigning.."

svo varð ég vitni að þessu fyndna samtali milli tveggja kvenna á skrifstofunni (þær töluðu mjög hratt og hvellt) :
"Hi how are you?"
-"Good, and you?"
"Good"
-"Good!"
svo sögðu þær í kór:
"GOOD"
og strunsuðu í sitthvora áttina

4 Comments:

At 4:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er eitthvað svo gott við að lesa bloggið þitt, það veitir mér sálarfrið. Oftar en ekki hef ég velt fyrir mér að ég sé dáldið skrítin og furðuleg, en svo kíki ég hingað inn og veit að ég er ekkert á leiðinni á klepp á næstunni... eins og sumir... hóst-hóst :)

 
At 6:51 e.h., Blogger -(..)- said...

heyrðu góða.. ég held þú sért ekki mikið skárri, boxarinn þinn! Alltaf í rosa sætum pæjufötum með kinnalit og stút á vörunum, tilbúin að berja alla...hmm.. -eða þá að sjúga glas pikkfast við andlitið á þér...
Nei Katrín mín, ÉG er eðlilega systirin..

 
At 9:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hehehe... ég vissi þú myndir byrja á orðunum heyrðu góða. Er það af því að ég er svona yfirnátturulega gáfuð eða þú svona fyrirséð? Hvur veit.

En hey, takk fyrir hrósin.

 
At 11:06 f.h., Blogger -(..)- said...

sennilega "yfirnatturulega gafud" (thad fyndnasta sem eg hef heyrt i langan tima)

 

Skrifa ummæli

<< Home