-(..)-

Þessi bloggsíða er mjög líkleg til að hækka greindarvísitölu þína

laugardagur, apríl 22, 2006

ágætu vinir og fjölskylda

Nú er ég komin til landsins til að vinna að sýningu sem ég set upp í gallerýi í Keflavík. Gallerýið sýnir svona nýmóðins listir, svona myndlist sem pabbi hristir hausinn yfir.

Ég fæ að gista eins og ég vil í íbúðinni fyrir ofan gallerýið og þar eyði ég nokkrum dögum í að leggja lokahönd á verkin. Ef einhver er móðgaður yfir að hafa hvorki verið heimsóttur né fengið símtal þá lýsi ég hér með yfir að slík samskipti eru í pásu þar til sýningin opnar, en ég stoppa á landinu til 24.maí og því nægur tími til kökuboða.

Ég er semsagt í húsi staðsett við Hafnargötuna í Keflavík (aðalgatan sko) og get ekki annað en flissað yfir liðinu á rúntinum. Þrátt fyrir glatað veður krúsa menn fram og til baka með mússígina í botni við opinn glugga og gefa í á 10metra kafla svona við og við.

Ekki koma með komment á Vestmannaeyjarúntinn. Hlífið mér.

Ég mun bjóða ykkur formlega á opnunina hér á síðunni en þangað til verðið þið að láta dags.upplýsingar nægja. OPNUN 29. APRÍL, Á LAUGARDEGI.

ég læt fylgja með mynd af uppáhaldsmanneskjunni minni:

3 Comments:

At 6:15 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Snilldarkrakki :)

 
At 10:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

halló sætur!!! vonandi getur maður hitt þig e-ð sæta og komið á sýninguna maður!!!

 
At 1:16 f.h., Blogger -(..)- said...

takk og puff JÁ MAÐUR OLGA! við getum líka stoppað í "ungó", "ný-ung" eða "nýúngó" og fengið okkur pulsu með ís og rís.

Staðreynd: það eru skrítin fyrirtækjanöfnin hér í bæ.
Staðreynd: ég man þau ekki akkúrat núna en ég get rökstutt það síðar. (lélegt argjúment)

Toppa samt ekki "Flott og Flippað" úr Vestmó. Ég get ekki sagt það nafn nema ég breyti röddinni í Stöðvar2tón Bjögga Halldórz.

þið sem þekkið mig komið auðvitað. með góðu eða... nei vo´ eikkað!

 

Skrifa ummæli

<< Home