-(..)-

Þessi bloggsíða er mjög líkleg til að hækka greindarvísitölu þína

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Hausinn á mér er fastur í ritgerð. Ég næ honum ekki út.







Hausinn verður í tómu rugli næstu daga en mun vonandi losna smám saman þegar að viðfangsefnið fer að skýrast. Þetta stafar af of stóru umfjöllunarefni sem þarf að komast fyrir á of fáum blaðsíðum, þar sem rannsóknir hafa teygst í hið óendanlega.





Þarf að klippa duglega svo hausinn losni.
-Ást.



ps. sjálf er ég skolhærð með tagl, skrúbba mig með mosa og lýsi, endurvinn úrgang og nærist á sálarlausu sálarfæði. Geng kappklædd á sumrin og fáklædd á veturna, herði mig með lestri á Séð og Heyrt og DV og mýki mig með kex-áti.

2 Comments:

At 3:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

það hefur nú þótt betra hingað til að hafa haus sinn fastann á búk. en gott er að hafa hann liðugann, ég sendi þér teygju eina til að liðka um. góðar stundir

 
At 2:55 e.h., Blogger -(..)- said...

kærar þakkir halldóra mín, ekki veitir af skipulagningartólum sem þessum.

 

Skrifa ummæli

<< Home